Fyrsta bloggið!!!

12:57:00

Hæhæ! Ég heiti Rúna og ég ætla að segja hérna frá mínu makeupi og hvað mér finnst um hitt og þetta makeup. Mig hefur langað mjög mikið til þess að byrja á svona bloggi og ég gerði það fyrir einu ári síðan sem gekk svo ekki upp þannig ég ákvað bara að búa til nýtt blogg og vonandi næ ég að gera eitthvað meira í þessu en hinu haha:) 

Ég á ekki mikið af makeupi vegna peninga en þetta er allt að koma, it’s growing!! 
Ég hef haft gaman af snyrtivörum frekar lengi og elska allt sem tengist þeim. Hef horft á YouTube video í mörg ár og er enn alltaf að fylgjast með! 
En eins og ég segi þá er þetta bara fyrsta bloggið mitt og á næstu dögum (pottþétt á laugardaginn) mun ég koma með eitt annað blogg og ég er búin að ákveða hvað það á að vera um!
Læt fylgja með mynd þar sem ég var aðeins að fikta mig áfram með Naked 3 pallettuna mína! 
Þar til næst! 
Rúna :)

You Might Also Like

1 comments