Hæhæhæ, ég veit að það er rosalega langt síðan ég bloggaði seinast en það er bara vegna
þess að ég fæ ekkert motivation til þess að blogga vegna þess að mér finnst eins og það hafi enginn áhuga á því að lesa blogg. En í gær þá postaði ég á snapchatið mitt hvort fólk væri almennt að lesa bloggin mín þessi sem eru komin og hvort að fólk myndi vilja að ég myndi halda þessu áfram. Ég bað einnig um að fá hvatningu frá fólki sem vill að ég haldi áfram til þess að ég verði aðeins spenntari fyrir þessu og vilji halda þessu áfram. Mér finnst rosalega gaman að blogga en ég bara nenni ekki að vera að eyða mínum tíma í þetta ef það nennir svo enginn að lesa. Ég fékk alveg þónokkrar hvatningar í gær og líka í dag og það var rosalega gaman að fá þessar hvatningar og lét mig vilja blogga þetta blogg sem ég er að gera núna. Í dag ætla ég að sýna ykkur æðislega pallettu sem ég fékk frítt með burstum sem ég keypti í Sigma búðinni í Mall of America þegar ég var úti í haust.
Það var semsagt þannig að ég fór í Mall of America í Minneapolis og var búin að ákveða það að fara í Sigma búðina þar og kaupa mér eitthvað. Þegar ég var komin með 2 bursta og Sigma Spa hanska til þess að þrífa bursta þá ákvað ég að fara að borga en afgreiðslustúlkan sagði að það vantaði aðeins 15-20 dollara uppá það að ég myndi fá þessa gullfallegu pallettu gefins með kaupunum. Þá fór ég og skoðaði aðeins meira og fann eitt rosa krúttlegt og bleikt burstasett með 3 burstum í og ég tók það og fékk þessa pallettu með mér heim. Ég ætla að sýna ykkur swatches og myndir og segja ykkur hvað augnskuggarnir heita og fleira. Vonandi finnst ykkur gaman að sjá :)

Hérna er pallettan, hún heitir Haze. Augnskuggarnir eru í
mörgum litum og þeir eru mjög litsterkir (pigmentaðir). Litirnir heita: Crush,
Oversee, Define, Publicize, Resist, Gossip, Allure og Dessert. Mér finnst
fjólubláu litirnir í pallettunni rosalega fallegir og það er aldrei að vita að
ég geri einhvertíman look á snapchat úr pallettunni. Með pallettunni fyldi
bursti með sitthvorum burstanum á báðum endum, E40 blöndunarbursti og E55
bursti til þess að láta augnskugga á augnlokið. Ég á báða burstana í sitthvoru
lagi og þeir eru báðir í uppáhaldi hjá mér. Hér
kemur ein nærmynd:
Vonandi fannst ykkur gaman að lesa þetta stutta blogg en ég verð vonandi duglegri að blogga á næstunni, megið endilega kommenta eitthvað hér undir eða senda mér skilaboð á snapchat og hvetja mig og ýta á eftir mér að blogga! :)
Þangað til næst