SLEEK - haustfjord.is

04:11:00

Í dag ætla ég að tala um Bad girl pallettuna frá Sleek sem vinkona mín keypti frá haustfjord.is og gaf mér. Þessi palletta er svo sjúk að ég þurfti bara aðeins að segja ykkur frá henni og sýna ykkur litina í henni og svona! Verður ekki mjög langt blogg í dag held ég. 



Bad girl 596 frá sleek


Þetta er þessi gulllllfallega palletta frá Sleek! Litirnir eru rosalega pigmentaðir og haldast mjög vel á. Ég dýrka þessa pallettu útaf það eru bæði svona litir í henni og svo svona til þess að gera smokey og líka svo þessir ljósu litir :) Nota oft ljósu litina til þess að láta undir augnskugga og stundum nota ég þennan dekkri til þess að láta undir augabrúnina mína, kemur mjög vel út. 
Það fylgdi með pallettunni einhversskonar bursti með svona svömpum á báðum endum, ég týndi honum strax hahah. Líka ekkert svakalega merkilegur :) 
Uppáhalds litirnir mínir í þessarri pallettu eru vínrauði liturinn og svo liturinn sem er á milli hvíta og silfurglimmer litanna. Þeir 2 passa líka mjög vel saman og ég var með þá í gær þegar ég fór í matarboð en því miður er ég svo vitlaus að ég gleymdi að taka mynd af förðuninni. 



Þetta eru fyrstu 6 litirinir, þessir dökku.





Þetta eru svo seinni 6, litirnir. 


Mér finnst þessi palletta geggjuð svo ég segi það einu sinni enn. Haustfjord.is er með mikið fleiri fallegar pallettur svo ég mæli endilega með að kíkja á síðuna, svo er hún með mikið fleiri hluti eins og Milani og Crown Brushes!! Ég keypti í fyrsta skipti af henni Milani baked blush um daginn og það var svo hröð og góð þjónustan hjá henni. Mæli eindregið með að kíkja og versla hjá henni. 

Jæja nú segi ég þetta bara gott

Þar til næst.
Rúnaa :) 









You Might Also Like

0 comments