Easter break makeup look!

16:03:00

Vandræðalegt hvað ég er rooosalega léleg í að blogga, en það er bara vegna þess að ég veit ALDREI hvað ég á að blogga um :( Megið endilega senda mér skilaboð á facebook ef þið eruð með eitthvað sérstakt sem þið viljið sjá, en jæja byrjumetta blogg!! 


Ég notaði mjög mikið þetta makeup look í páskafríinu, eins og ef ég var að fara í fermingu, út að borða eða bara hitta vini mína. Rosalega casual look með smá augnskugga, annars er þetta eiginlega mín daglega makeup rútína ef þessi augnskuggi væri ekki. 



Sést ekkert rosalega vel á myndinni, en það verður að hafa það! 
Vörurnar sem ég notaði voru: 
- Nivea Soft krem, sem ég læt á húðina áður en ég byrja að mála mig. 
- Perfect blur primer frá Garnier, nota hann ekki alltaf vegna þess að ég fýla hann ekki alveg nógu mikið! Finnst hann ekki breyta miklu.
- 24hr meikið frá maybelline, finnst það svakalega gott og ég veit að þetta er ‘’cheap’’ meik en ég fýla það mjög! Fínt fyrir mig :)
- Concealer úr Zebra cosmetics store á Laugaveginum. Elska hann, finnst hann hylja mjög vel og svo nota ég líka LA girl pro concealer og ég ELSKA HANN! (fotia.is) 
- Í augabrúnirnar nota ég bara einhvern augabrúnalit sem ég fékk í jólagjöf frá bróðir mínum, en ég veit ekkert hvaða merki hann er :o 
- Svo augnskugginn minn, ég nota litinn Strange í Naked3 pallettunni minni yfir allt augnlokið, hann er bara svona mjög ljós litur og virkar vel undir alla augnskugga. Svo læt ég í ‘’creaseið’’ Nooner litinn úr sömu pallettu, og hann er svona ljósbrúnn og er eiginlega minn uppáhalds augnskuggi. 
- Svo nota ég eyeliner frá maybelline :) 
- Maskarinn sem ég nota er maskari frá NEE, mjög góður maskari og ég hef bloggað um hann áður! 
- Svo nota ég kinnalitinn Luminoso frá Milani og hann er það fallegasta sem ég hef séð og ég elska hann svo mikið og nota hann líka á hverjuuum degi! 
- Bronzerinn sem ég nota er svo frá Body Shop, bloggaði um hann í Reykjavíkur Haul blogginu. 
- Síðast en ekki síst nota ég litinn Hue frá Mac á varirnar :) 

Mér finnst þetta mjög fallegt og venjulegt look fyrir bara svona skóladag eða vinnudag eða bara eitthvað annað! :) 

Í næsta bloggi ætla ég að sýna ykkur mömmu mína fyrir og eftir augabrúnalitun sem ég geri oft á hana :) 

Þar til næst! (sem verður vonandi í þessari viku) 
Rúna :) 

You Might Also Like

0 comments