April favorites!

16:57:00

Úfff, það er búið að vera svooo mikið að gera hjá mér að ég er að deyja. Ég er búin að vera gera rosalega mikið af verkefnum og svo heimildaritgerð sem ég var bara að klára núna á fimmtudaginn. En vá, allt að verða búið og alveg að koma sumarfríi!! woopwoop :) 

Í þessu bloggi ætla ég að sýna ykkur uppáhalds hlutina mína í apríl, eða eiginlega bara mars og apríl haha, alltof langt síðan ég bloggaði :s 
lets start!!

Makeup: Það makeup sem hefur verið mjög mikið í notkun í apríl og smá í mars eru þessar vörur. 
<3 




1. Milani - Luminoso baked blush <3 vá hvað ég elska hann, nota hann á HVERJUM degi! Hvort sem ég er bara ómáluð eða full máluð eða bara með eitthvað smá þá er ég ALLTAF með þennan yndislega blush á mér, úfff held þetta sé bara lang besta og uppáhalds varan mín síðan ég byrjaði að mála mig :o Hann fæst hér hjá Heiðdísi :) 
2. Real Techniques - Blush Brush <3 ég nota þennan alltaf með kinnalitnum og hann er svoo góður, fékk hann í afmælisgjöf frá einni yndislegri vinkonu minni :) Fæst í Hagkaup, Lyfju, Lyf og heilsu og Kjólar og Konfekt (þeir staðir sem ég veit að selja RT) 
3. Loréal - So Couture maskari <3 nota þennan alltaf þegar ég læt á mig maskara, á reyndar alveg frekar mikið af maskörum en þessi er lang bestur og búinn að vera notaður mikið í apríl!
4. Body Shop - Brow & Liner kit <3 ég nota 02 litinn, hentar mjög vel fyrir mig og mér finnst þetta baraaaa snilld! Gerir augabrúnirnar mínar svoo flottar og helst vel á og bara allt :) Nota þetta líka á hverjum degi! 

Já, þetta eru uppáhalds makeup vörurnar mínar þennan mánuðinn en svo er ég með tvo aðra hluti sem mér langar að sýna ykkur og ég er rosalega skotin í! 

svoo fallegt!
Þetta glas er bara svoo rosalega fallegt!! Ég keypti það þegar ég fór á AK-X í búðinni Sirku. Fallegasta búð ever. Takk. Þetta glas er með svona blúndum, og blúndur heilla mig alveg svakalega! Var að pæla í að nota glasið undir eitthvað (makeup, bursta???) þegar ég verð komin með nýtt herbergi, sem verður vonandi bráðum. Ef ég nenni að gera eitthvað. Gerist í sumar! LOFA :) 



Jakkinn. 
Þessi jakki sko. Hann er bara uppáhalds flíkin mín ever! Hann er bara svo plain, það er hægt að fara í honum í skólann og svo nota ég hann mikið í að fara eitthvað út (djamm, út að borða, matarboð ofl.). Elskann!!! 


Jæja, er ekki með fleiri hluti að þessu sinni! 
Bæjó :* 


You Might Also Like

0 comments